Beint í efni
Verslun/Námskeið/
Þjónustunámskeið – Fagmennska, betri samskipti og ánægðari viðskiptavinir

Þjónustunámskeið – Fagmennska, betri samskipti og ánægðari viðskiptavinir

Product information

‌
‌

Short description

Mótaðu skýra stefnu í þjónustu og veittu teyminu þínu verkfærin til að skila samræmdum gæðum í sérhverjum samskiptum!

Þetta heildstæða þjónustunámskeið samþættir væntingastjórnun, fagleg samskipti og rétt viðhorf í hagnýta vinnustofu. Námskeiðinu fylgja tvær sérhönnuðu handbækurnar Árangursrík líkamstjáning og samskipti í þjónustu og 50 uppskriftir að góðri þjónustu eftir leiðbeinandann — tilvalin verkfæri sem tryggja að færnin lifi áfram á vinnustaðnum.

💰 Allt að 90% endurgreiðsla hjá starfsmenntasjóðum. Fjárfestu í samræmdri þjónustumenningu og efldu orðspor fyrirtækisin

Description

Samræmd þjónusta og fagleg samskipti – Frá væntingum til framúrskarandi upplifunar

Góð þjónusta gerist sjaldnast af sjálfu sér — hún krefst skýrra ferla, rétt hugarfars og samræmdrar tækni í samskiptum. Þetta námskeið tekur tvær mikilvægustu stoðir þjónustugæða og tengir þær saman í eina heildstæða þjálfun.

Þátttakendur læra að greina og stýra væntingum viðskiptavina til að koma í veg  fyrir vonbrigði, ásamt því að ná valdi á faglega samskiptatækni og líkamstjáningu sem skapar traust, dregur úr misskilningi og eykur ánægju í hverju einasta samtali.

 

📊 Faglegur rammi: Byggt á 5 lykilþáttum þjónustugæða (SERVQUAL)
Námskeiðið tekur mið af alþjóðlega viðurkenndum mælikvörðum um þjónustugæði og veitir teyminu skýr verkfæri í:

1. Áreiðanleiki: Að veita rétta þjónustu í fyrsta sinn og standa við öll loforð.
2. Viðbragðsflýtir (hraði): Að sýna ríkan vilja til að hjálpa og veita skjóta, lausnamiðaða þjónustu.
3. Öryggi & fagmennsku: Að vekja traust með víðtækri þekkingu, raddbeitingu og faglegum viðbrögðum.
4. Samhygð: Að setja sig í spor viðskiptavinarins og sýna persónulega athygli.
5. Áþreifanlegum þáttum: Að samræma líkamstjáningu, ásýnd og umhverfi við framúrskarandi gæði.

 

📖 Sérstaða námskeiðsins: Með námskeiðinu fylgja tvær sérhönnuðu handbækurnar Árangursrík líkamstjáning í þjónustu og 50 uppskriftir að góðri þjónustu. Bækurnar eru stútfullar af hagnýtum gátlistum, raunverulegum dæmum og uppskriftum sem eru sérsniðnar að íslenskum þjónusturaunveruleika og tryggja að færnin verði eftir á vinnustaðnum.

 

🎓 Fagleg leiðsögn: Leiðbeinandi er Margrét Reynisdóttir, höfundur bóka um þjónustugæði og sérfræðingur með yfir 20 ára reynslu af þjónustuþjálfun hjá íslenskum fyrirtækjum.


 
Ávinningur– hvað færð þú út úr námskeiðinu?

✔ Samræmd gæði í öllum samskiptum: Tryggðu að viðskiptavinir fál sömu framúrskarandi þjónustuna — óháð því hver tekur á móti þeim.
✔ Aukin færni í væntingastjórnun: Lærðu að koma í veg fyrir vonbrigði með því að setja skýr, fagleg og raunhæf mörk strax í  upphafi.
✔ Meðvitund um líkamstjáningu: Lærðu hvernig óyrt skilaboð, líkamsstaða og raddbeiting stýra upplifun viðskiptavinarins.
✔ Verkfæri sem endast: Bækurnar tvær tryggja að teymið geti flett upp lausnum og „uppskriftum“ löngu eftir að námskeiðinu lýkur.

 


 
Fyrir hverja er námskeiðið?

Námskeiðið hentar öllum vinnustöðum þar sem samskipti við viðskiptavini, skjólstæðinga eða samstarfsfólk skipta máli. Það er sérstaklega gagnlegt fyrir þjónustuver, framlínustarfsfólk, söluteymi og stjórnendur sem vilja samræma þjónustuverklag síns fyrirtækis.

 


 
Fyrir vinnustaði og teymi

Í boði á íslensku og ensku, bæði sem gagnvirkt rafrænt sjálfsnám og sem sérsniðið staðnámskeið þar sem dæmi og æfingar eru miðuð við ykkar raunverulegu áskoranir. » Sjá nánar

 


 
Umsagnir frá þátttakendum

„Námskeiðið gaf okkur skýran ramma og tæki til að samræma þjónustuna þvert á öll teymi. Væntingastjórnunin ein og sér breytti miklu í okkar daglega rekstri.“
„Mjög hagnýtt og skemmtilegt! Bækurnar tvær sem fylgja með eru algjör gullnáma — við notum 50 uppskriftir að góðri þjónustu reglulega á starfsmannafundum.“
„Frábær þjálfun sem opnaði augu okkar fyrir mikilvægi líkamstjáningar og faglegrar tækni í samskiptum. Mæli með þessu fyrir alla vinnustaði sem vilja skara fram úr í þjónustu.“

 


 
Vertu á undan – bókaðu eða fáðu frekari upplýsingar

Færðu þjónustuna á hærra stig og gerðu samræmda upplifun að þínu helsta samkeppnisforskoti.

📧 gerumbetur@gerumbetur.is | 📞 899 8264

 


 
Nýttu styrkina – við aðstoðum við umsóknina

Námskeiðið er styrkhæft hjá Áttinni og flestum starfsmenntasjóðum. Við aðstoðum þig við umsóknarferlið – hafðu samband við okkur til að fá nánari upplýsingar.

 


 
Tengdar greinar og sérfræðiráð

✔ Lofa minna, standa við meira | Væntingastjórnun í þjónustu

✔ Ekki láta viðskiptavini bíða: Þögnin kostar meira en þú heldur

✔ Framúrskarandi þjónusta – Innleiðing þjónustustefnu með markvissum aðferðum

 

Description