Samskiptanámskeið fyrir verslanir
Product information
Short description
Sérsniðinn námskeiðspakki sem styrkir þjónustulund, samskiptahæfni og menningarnæmni í verslunum með fjórum hagnýtum netnámskeiðum.
Description
Þessi netnámskeið fyrir verslun byggir upp jákvæða upplifun og styður við fagleg og persónuleg samskipti við fjölbreyttan hóp viðskiptavina.
Fjögur markviss þjónustunámskeið fyrir framlínustarfsfólk sem styrkja þjónustulund, menningarnæmi og samskiptafærni í lifandi verslunarumhverfi.
Öll námskeiðin eru sjálfstæð og í boði sem sveigjanlegt gagnvirkt sjálfsnám. Hægt er að bæta við staðnámi fyrir vinnustaði og teymi til að efla samræmd vinnubrögð og jákvæða upplifun viðskiptavina.
Skoðaðu námskeiðin sem eru innifalin í pakkanum – hvert þeirra bætir lykilhæfni í samskiptum og þjónustu:
• Árangursrík samskipti – styrktu áhrif þín með skýrri framkomu, raddbeitingu og líkamstjáningu
• Erfiðir viðskiptavinir – náðu ró í krefjandi samskiptum með lausnamiðuðum og faglegum viðbrögðum
• Menningarnæmni í þjónustu – lærðu að forðast misskilning og mæta þörfum viðskiptavina með ólíkan bakgrunn af virðingu.
• Hrós er sólskin – skapaðu jákvæð samskipti með uppbyggjandi endurgjöf sem styrkir teymisanda og starfsánægju
Ávinningur – hvað færð þú út úr námskeiðunum?
✔ Meiri fagmennska og öryggi í samskiptum
✔ Jákvæðari upplifun fyrir viðskiptavini
✔ Minni streita og aukin starfsánægja
✔ Sameiginleg þjónustustefna og sterkari teymisvinna
Fyrir hverja eru þessi námskeið?
Starfsfólk í verslun, afgreiðslu og framlínuþjónustu sem vill efla samskipti og skapa jákvæða upplifun fyrir viðskiptavini.
Sérstaklega gagnleg fyrir teymi sem vilja samræma samskiptahætti, efla traust og byggja upp jákvæða þjónustumenningu.
Fyrir vinnustaði og teymi – námskeið sem skila árangri
Þetta eru netnámskeið fyrir verslun og þjónustuteymi sem eru sveigjanlegt sjálfsnám með myndskeiðum, verkefnum og hagnýtum verkfærum.
Einnig hægt að bæta við sérsniðnu staðnámi fyrir dýpri þekkingu, aðlagað að þörfum vinnustaðs.
Með fylgja fjórar hagnýtar bækur og viðurkenningarskjal.
Aðgangur: 4 vikur.
Umsagnir frá þátttakendum
„Ég skrifa nú tölvupósta af öryggi og spara bæði tíma og orku.“
„Símtölin mín eru faglegri og ég skynja að viðskiptavinir mínir verða jákvæðari.“
„Ég er rólegri og öruggari þegar kvartað er – og fæ betri niðurstöðu.“
„Frábært námskeið með Erni Árnasyni– lærði mikið um framkomu og líkamstjáningu.“
Vertu á undan – styrktu þjónustufærni þína strax í dag
Fáðu fjögur öflug þjónustunámskeið í einum pakka – aukið öryggi, meiri fagmennska og markviss samskipti.
gerumbetur@gerumbetur.is
Styrkjamöguleikar – Fáðu allt að 90% endurgreitt fyrir þjónustunámskeið
Pakkinn er styrkhæfur hjá mörgum fræðslusjóðum. Flest fyrirtæki geta fengið allt að 90% af kostnaði endurgreiddan – óháð inneign starfsfólks. Við aðstoðum við umsóknina ➡ Frekari upplýsingar um styrki á attin.is



