Samskiptanámskeið fyrir skrifstofur
Product information
Short description
Sérsniðinn námskeiðspakki sem eflir fagmennsku og samskiptafærni í þjónustu með fjórum hnitmiðuðum netnámskeiðum.
Description
Byggir upp traust og samhæfða þjónustumenningu í teymum.
Fjögur hnitmiðuð netnámskeið sem efla fagmennsku í símtölum, tölvupóstum, framkomu og viðbrögðum við krefjandi samskiptum.
Öll námskeiðin eru sjálfstæð og í boði sem sveigjanlegt gagnvirki sjálfsnám. Hægt er að bæta við staðnámi fyrir vinnustaði og teymi.
Smelltu á námskeiðin hér fyrir neðan til að sjá nánari lýsingu:
- Topp símaþjónusta fagmennska og áhrif í símtölum
- Skrifaðu betri tölvupósta markviss og traustvekjandi samskipti
- Erfiðir viðskiptavinir rósemi, lausnamiðuð viðbrögð og fagmennska
- Árangursrík samskipti áhrif framkomu, raddbeitingar og líkamstjáningar
Ávinningur – hvað færð þú út úr námskeiðunum?
✔ Meiri fagmennska og öryggi í samskiptum
✔ Betri þjónustugæði og ánægðari viðskiptavinir
✔ Minni streita, færri árekstrar
✔ Sameiginleg þjónustumenning í teymum
Fyrir hverja eru þessi námskeið?
Allt starfsfólk í þjónustu, afgreiðslu, móttöku, símsvörun, sölu eða stjórnunarhlutverkum. Sérstaklega gagnleg fyrir teymi sem vilja samræma samskiptahætti, efla traust og byggja upp jákvæða þjónustumenningu.
Fyrir vinnustaði og teymi – námskeið sem skila árangri
Námskeiðin eru í boði sem sveigjanlegt sjálfsnám á netinu með myndskeiðum, verkefnum og hagnýtum verkfærum.
Einnig hægt að bæta við sérsniðnu staðnámi fyrir dýpri þekkingu, aðlagað að þörfum vinnustaðs.
Með fylgja fjórar hagnýtar bækur og viðurkenningarskjal.
Aðgangur: 4 vikur (nema um annað sé samið).
Umsagnir frá þátttakendum
„Ég skrifa nú tölvupósta af öryggi og spara bæði tíma og orku.“
„Símtölin mín eru faglegri og ég skynja að viðskiptavinir mínir eru jákvæðari.“
„Ég er rólegri og öruggari þegar kvartað er – og fæ betri niðurstöðu.“
„Frábært námskeið með Erni Árnasyni– lærði mikið um framkomu og líkamstjáningu.“
Vertu á undan – styrktu þjónustufærni þína strax í dag
Fáðu fjögur öflug þjónustunámskeið í einum pakka – aukið öryggi, meiri fagmennska og markviss samskipti.
gerumbetur@gerumbetur.is
Styrkjamöguleikar – Fáðu allt að 90% endurgreitt fyrir þjónustunámskeið
Pakkinn er styrkhæfur hjá mörgum fræðslusjóðum. Flest fyrirtæki geta fengið allt að 90% af kostnaði endurgreiddan – óháð inneign starfsfólks. Við aðstoðum við umsóknina ➡ Nánar á attin.is



