Það sem fær hrós vex
Product information
Short description
Breyttu hrósi úr innihaldslausum frasa í öflugt stjórnunartæki!
Lærðu að beita markvissri endurgjöf til að efla traust, liðsheild og sálfræðilegt öryggi á hagnýtri vinnustofu. Með námskeiðinu fylgir einstakur og sérhannaður hrósspilastokkur — nýtt þjálfunartól á íslenskum markaði sem heldur þjálfuninni lifandi hjá teyminu, ásamt 8 stuttum örþjálfunarmyndböndum þar sem Örn Árnason ljáir efninu líf.
Allt að 90% endurgreiðsla hjá starfsmenntasjóðum. Fjárfestu í vinnustaðamenningunni og upplifðu raunverulegan árangur strax!
Description
Lærðu að nýta mátt hróssins – skapaðu jákvæða menningu og efldu liðsheild
Hrós sem stjórnunartæki – Hagnýtt námskeið fyrir sterkari teymi
Þetta námskeið sameinar markvissa samskiptaþjálfun, jákvæða endurgjöf og hagnýt verkfæri til að efla fagleg samskipti og auka starfsánægju á vinnustað.
Þú lærir að nota einlægt og markvisst hrós sem faglegt tól til að byggja upp sterkari teymi, tengja dagleg störf við áherslur og gildi fyrirtækisins og skapa jákvæða vinnustaðamenningu.
🃏 Einkaréttur: Með námskeiðinu fylgir sérhannaður spilastokkur á íslensku og ensku („Það sem fær hrós vex“) — nýtt og hagnýtt þjálfunartól sem hefur ekki sést áður á íslenskum markaði og tryggir að teymið haldi áfram að þjálfa sig vikum saman eftir að námskeiði lýkur.
🎬 Aukabónus: 8 stutt og lifandi þjálfunarmyndbönd (1-3 mín.) raddsett af Erni Árnasyni, tilvalin á morgunfundi eða í starfsmannaþjálfun.

Ávinningur – hvað færð þú út úr námskeiðinu?
✔ Rétt tækni við endurgjöf: Nýttu jákvæða endurgjöf til að auka starfsánægju og komast hjá klassískum mistökum (eins og „...en“ hrósinu).
✔ Tengdu hrós við stefnu fyrirtækisins: Lærðu að nota hrós til að draga fram gildi og áherslur fyrirtækisins í dags daglega og móta þannig rétta hegðun í teyminu.
✔ Sterk vinnustaðamenning: Bættu dagleg samskipti og byggðu upp umhverfi þar sem sálfræðilegt öryggi dregur fram það besta í fólki.
✔ Verkfæri sem endast: Nýttu hrósspilastokkinn til að halda umræðunni um traust og samvinnu lifandi viku eftir viku.
Fyrir hverja er þetta námskeið?
Námskeiðið hentar stjórnendum, leiðtogum og starfsfólki sem vill efla samskiptahæfni, auka vellíðan í teymum og styrkja menningu vinnustaðarins.
Það er sérstaklega gagnlegt fyrir þá sem starfa í mannauði, þjónustu, teymisstjórnun eða vilja nýta jákvæða sálfræði í eigin starfsþróun.
Umsagnir frá þátttakendum
„Þetta námskeið breytti því hvernig ég nálgast samskipti og endurgjöf í mínu mínu.“
„Þetta litla sem við breyttum – að hrósa af einlægni og nota spilastokkinn – hafði ótrúleg áhrif á andrúmsloftið.“
„Frábært efni, góð framsetning og mjög hvetjandi. Þetta ætti að vera skyldunám á öllum vinnustöðum.“
Fyrir vinnustaði og teymi
Í boði á íslensku og ensku.
Leiðbeinandi námskeiðsins er Margrét Reynisdóttir, höfundur fjölda bóka og sérfræðingur með yfir 20 ára reynslu af þjálfun í samskiptum og vinnustaðamenningu.
Vertu á undan – bókaðu eða fáðu frekari upplýsingar
📧 gerumbetur@gerumbetur.is | 📞 899 8264
Nýttu styrkina – við aðstoðum við umsóknina.
Námskeiðið er styrkhæft hjá Áttinni og flestum starfsmenntasjóðum. Við aðstoðum þig við umsóknarferlið – hafðu samband við okkur til að fá nánari upplýsingar.
Tengdar greinar og sérfræðiráð
✔ Það sem fær hrós vex: Hvers vegna er almennt hrós oft innihaldslaust?
✔ Lofa minna, standa við meira | Væntingastjórnun í þjónustu
✔ Framúrskarandi þjónusta – Innleiðing þjónustustefnu með markvissum aðferðum
