Beint í efni
Verslun/Rafræn námskeið/
Tölvupóstsamskipti, netspjall og gervigreind

Tölvupóstsamskipti, netspjall og gervigreind

Product information

‌
‌

Short description

Netnámskeið í rafrænum samskiptum fyrir starfsfólk og stjórnendur sem vilja skrifa skýrari, faglegri og mannlegri tölvupósta og netspjall. Þú lærir að skrifa minna en segja meira, forðast misskilning og nýta gervigreind á ábyrgan hátt í daglegu starfi – meðal annars til að láta hana útbúa uppkast að svörum og eigin tölvupóstum sem þú fínstillir svo.

Námskeiðið byggir á 8 kafla kerfi með stuttum lotum og gagnvirkum verkefnum. Rafbók, gátlisti og viðurkenningarskjal fylgja – hægt er að nýta námið bæði í sjálfsnámi og sem grunn að fræðsludegi eða vendinámi fyrir teymi.

Fyrir vinnustaði og teymi: sendu póst á gerumbetur@gerumbetur.is og fáðu tillögu að vendinámi.

.

Description

Færni í tölvupóstsamskiptum, netspjalli og gervigreind – rafræn þjálfun sem nýtist strax í starfi

Fyrir vinnustaði sem vilja bæta gæði rafrænna samskipta, stytta fram og tilbaka póstsendingar og draga úr misskilningi er þetta netnámskeið einföld og sveigjanleg lausn. Þátttakendur læra að skrifa skýrari, faglegri og hnitmiðaðri skilaboð sem spara tíma í samskiptum við samstarfsfólk og viðskiptavini.

Námið byggir á 8 kafla kerfi í tölvupóstsamskiptum, netspjalli og notkun gervigreindar. Námskeiðið er gagnvirkt, með fjölda spurninga og verkefna sem hjálpa þátttakendum að tengja efnið við dagleg störf. Þú getur tekið námskeiðið í einni lotu eða nokkrum skrefum.

Viltu námskeiðið fyrir allt teymið? Sendu póst á gerumbetur@gerumbetur.is og fáðu tillögu að fræðsludegi og vendinámi.

 


 

Ávinningur fyrir vinnustað og stjórnendur

- Skýrari tölvupóstar og netspjall sem draga úr misskilningi og stytta tíma sem fer í að útskýra mál aftur og aftur.
- Samræmdur og faglegur tónn í rafrænum samskiptum sem styrkir ímynd vinnustaðarins gagnvart viðskiptavinum og samstarfsaðilum.
- Skýr skref til að nota gervigreind til að útbúa uppkast að svörum og tölvupóstum í samræmi við persónuvernd, fagmennsku og stefnu vinnustaðarins.
- Skýr rammi sem hægt er að nota á fræðsludögum, nýliðafræðslu og reglulegri endurmenntun starfsfólks.

 


 
Fyrir hverja er námskeiðið?

 - Alla sem nota tölvupóst eða þjónustukerfi eins og Zendesk í starfi.
- Stjórnendur og teymisstjóra sem vilja samræma tón og gæði samskipta.
- Starfsfólk í móttöku og  skrifstofu- og sérfræðistörfum sem sendir marga tölvupósta á dag.
- Alla sem nýta gervigreind (t.d. ChatGPT) til að fá uppkast að svörum og tölvupóstum sem þau geta síðan aðlagað og fínstillt.

Hægt er að kaupa aðgang fyrir einstaklinga eða teymi. Fyrirtæki geta fengið tilboð og sérsniðnar lausnir.

 


 

Námskeiðið í hnotskurn

Námskeiðið fer fram á netinu og inniheldur:


- Hagnýta gátlista og verkfæri sem nýtast strax í daglegu starfi.
- Rafrænt námsefni byggt á 8 lyklum um tölvupóstsamskipti, netspjall og gervigreind í samskiptum.
- Rafbókina „8 lyklar að árangursríkum tölvupóstsamskiptum“ sem dýpkar efnið og má nota áfram í innri fræðslu.
- Krossapróf, verkefni og ígrundunarspurningar sem festa þekkingu og skilning í sessi.

Að loknu námskeiði færðu viðurkenningarskjal.

Aðgangur að efninu er í fjórar vikur frá skráningu – þetta er sjálfsnám þar sem þú ræður hraðanum, hvort sem þú tekur allt námið í einu lagi eða í áföngum.

Námskeiðið er á íslensku og ensku.

 


 
Umsagnir þátttakenda

„Ég skrifa nú mun skýrari tölvupósta og nota gervigreind af miklu meira öryggi.“
„Námskeiðið hjálpaði okkur að samræma tölvupósta í teyminu og fagmennsku og mannlega nálgun á sama tíma.“
„Æfingarnar voru raunhæfar og hjálpuðu mér strax í daglegu starfi.“

 


 

Fyrir vinnustaði og teymi

Við bjóðum upp á öflugt vendinám í rafrænum samskiptum þar sem þetta sveigjanlega netnámskeið er grunnurinn. Í framhaldi sérsníðum við staðnámskeið eða fjarvinnustofu sem dýpkar umræðuna, tengir efnið enn frekar við ykkar raunverulegu aðstæður og skapar lifandi umræður sem festa lærdóminn betur í sessi. Þegar þátttakendur vinna út frá eigin dæmum úr starfi styrkir það skilning á faglegum samskiptum, leiðir til skýrari og hnitmiðaðri tölvupósta, markvissari notkunar netspjalls og gervigreindar.

Viltu skoða lausn fyrir þinn vinnustað? Sendu póst á gerumbetur@gerumbetur.is og við leggjum til fræðslu og vendinám sem hentar teyminu þínu.

 


 

Vertu skrefi á undan– skráðu þig núna

Taktu tölvupóstinn, netspjallið og notkun gervigreindar upp á næsta stig – bæði fyrir þig og vinnustaðinn.

Skráðu teymið þitt beint hér í vefverslun – eða sendu stutta línu á gerumbetur@gerumbetur.is og við leggjum til plan fyrir þinn vinnustað (hópar, vendinám, styrkir).

 


 
Styrkjamöguleikar – Fáðu allt að 90% endurgreitt fyrir þjónustunámskeið

Námskeiðið er styrkhæft hjá flestum fræðslusjóðum. Flest fyrirtæki geta fengið allt að 90% af kostnaði endurgreiddan – óháð inneign starfsfólks. Við aðstoðum við umsóknina ➡ Nánar á attin.is

 


 
Algengar spurningar frá vinnustöðum
  1. Hversu miklum tíma þarf starfsfólk að verja í námskeiðið? Flestir ljúka netnáminu á 2–3 klukkustundum, í nokkrum stuttum lotum. Rafbók má lesa á meðan á námskeiði stendur eða nota til upprifjunar síðar.
  2. Hentar námskeiðið fyrir stærri teymi? Já. Algengt er að fyrirtæki kaupi aðgang fyrir 10–50 manns í einu og nýti netnámið sem undirbúning fyrir sameiginlega vinnustofu eða fræðsludag. Þá verður það grunnur að öflugu vendinámi.
  3. Get ég fylgst með því hvort starfsfólk hefur lokið námskeiðinu? Já. Við getum útbúið yfirlit fyrir tengilið vinnustaðarins þar sem sést hverjir hafa lokið netnáminu og fengið viðurkenningarskjal.

» Sjá nánar algengar spurningar

 

Description