Beint í efni
Verslun/Námskeið/
Þjónustunámskeið fyrir símaþjónustu og samskiptafærni

Þjónustunámskeið fyrir símaþjónustu og samskiptafærni

Product information

‌
‌

Short description

Þegar viðskiptavinur leggur á, veit hann þá hver tekur við erindinu og hvenær hann fær svar?

Á þessari vinnustofu æfir starfsfólkið að svara í símann, greina erindið með markvissum spurningum og ljúka samtalinu þannig að næsta skref sé skýrt. Við vinnum út frá raunverulegum símtölum sem starfsfólkið þekkir úr eigin starfi – allt frá stuttri fyrirspurn til samtals við viðskiptavin sem hefur beðið lengur en honum var lofað.

Sérsniðið staðnámskeið á íslensku eða ensku. Lengd: frá einni klukkustund upp í tvo daga. Margrét Reynisdóttir leiðir vinnustofuna. Teymið fær handbók hennar, Topp símaþjónusta, með íslenskum dæmum og ráðum sem nýtast til að efla símaþjónustu og í þjálfun nýs starfsfólks.

Fá tilboð í námskeið í símaþjónustu

Description

Hvað heyrir viðskiptavinurinn þegar hann hringir?

Starfsmaður leitar að svari á skjánum. Viðskiptavinurinn heyrir þögn. Með einni setningu má gera biðina skiljanlega: „Ég ætla að fletta upp hvenær pöntunin fór frá okkur. Má ég biðja þig að bíða augnablik?“

Í síma þarf oft að segja upphátt það sem viðmælandinn sæi ef hann stæði við afgreiðsluborðið. Á námskeiðinu prófið þið hvernig orðalag, raddblær og hlustun hafa áhrif á samtalið. Þið æfið líka að komast fyrr að kjarna erindisins svo viðskiptavinurinn þurfi síður að endurtaka sig eða hringja aftur.

Hvað æfir starfsfólkið?

  • Taka á móti símtali. Heyrir sá sem hringir hvert hann er kominn og fær hann svigrúm til að bera upp erindið?
  • Greina erindið og stytta samtal. Notið markvissa spurningatækni til að stýra samtalinu. Dragið saman það sem þarf að leysa fyrst og spyrjið markvisst um upplýsingarnar sem vantar.
  • Útskýra bið og tengja áfram. Segið hvers vegna að fletta þarf einhverju upp eða fá samstarfsmann til að taka við. Æfið að koma erindinu áfram svo viðskiptavinurinn þurfi síður að endurtaka söguna.
  • Bregðast við óánægju. Æfið að halda rólegum raddblæ, sýna að þið hafið skilið hvað fór úrskeiðis og útskýra hvaða lausn eða eftirfylgni er í ykkar höndum.
  • Ljúka símtali skýran hátt. Takið stuttlega saman hvað hefur verið ákveðið, hver tekur næsta skref og hvenær viðskiptavinurinn má vænta svars.

Paraæfing – prófið símtalið bak í bak

Setjist bak í bak svo þið heyrið aðeins hvort í öðru eins og í síma. Annað ykkar tekur við símtalinu. Hitt byrjar á þessum orðum:

„Ég átti að fá svar í gær. Geturðu sagt mér hvað er að gerast?“

Sá sem svarar þarf upplýsingar frá annarri deild. Æfið að taka á móti óánægjunni, kanna hvað viðmælandinn þarf helst að vita og bjóða næsta skref sem þið getið staðið við.

Ræðið og berfið saman í framhald af æfingu. Sá sem hringdi svarar fyrst: „Hvað heyrði ég sem sýndi að þú skildir erindið? Vissi ég í lokin hvort ég ætti að bíða eftir svari eða hringja sjálf aftur?“ Skiptið síðan um hlutverk.

Hvenær hentar námskeiðið ykkar vinnustað?

Námskeiðið hentar starfsfólki í þjónustuverum, móttöku, afgreiðslu og ráðgjöf, ásamt stjórnendum sem bera ábyrgð á símaþjónustunni. Það nýtist sérstaklega vel þegar þið kannist við einhverjar af þessum aðstæðum:

  • Viðskiptavinir eru tengdir milli deilda og þurfa að útskýra sama erindið oftar en einu sinni.
  • Símtöl dragast á langinn því seint kemur í ljós hvaða aðstoð viðmælandinn þarf.
  • Starfsfólkið vill öðlast meira öryggi í samtölum við óánægða viðskiptavini.
  • Stjórnendur vilja samræma hvernig loforð um svar eru gefin og hvernig þeim er fylgt eftir milli vakta.

Svona fylgja stjórnendur þjálfuninni eftir

Veljið eitt algengt erindi á næsta teymisfundi. Biðjið tvo starfsmenn að prófa hvernig þeir myndu svara og berið saman svörin. Komið ykkur saman um hvaða grunnupplýsingar þurfa alltaf að koma fram. Þannig fær teymið skýr viðmið um leið og hver starfsmaður getur notað orðalag sem honum finnst eðlilegt.

Notið handbókina sem fylgir námskeiðinu og farið yfir hvern kafla, ræðið raundæmin og spurningar á stuttum teymisfundum til að viðhalda og bæta þjónustuna stöðugt.

Bókin Topp símaþjónusta fylgir námskeiðinu

Topp símaþjónusta er handbók með dæmum og ráðum sem teymið getur flett upp í eftir vinnustofuna. Hún nýtist meðal annars til að ræða hvernig hægt er að útskýra bið, orða næstu skref og er með mörg íslensk raundæmi sem hægt er að nota til að viðhalda og bæta stöðugt þjónustuna.

Margrét Reynisdóttir leiðir námskeiðið og er höfundur bókarinnar. Hún byggir þjálfunina á yfir 20 ára reynslu og rannsóknarvinnu á sviði þjónustu og samskipta.

Umsagnir frá þátttakendum

„Ég lærði hvernig ég get sýnt fagmennsku og leyst mál í síma á skjótan og jákvæðan hátt. Þetta hefur breytt viðmóti mínu í hverju einasta símtali.“

„Mjög gagnlegt námskeið sem eykur sjálfstraust í símasamskiptum – sérstaklega gagnlegt þegar kemur að krefjandi viðskiptavinum.“

„Ég fékk einföld en áhrifarík ráð til að ná betri tökum á símasamskiptum og stjórna þeim af meiri ró og öryggi.“

„Frábært að fá bókina með – hún er stutt, skýr og hjálpar til að rifja upp lykilatriði í dagsins önn.“

Fyrirkomulag, tungumál og styrkir

Staðnámskeið á íslensku eða ensku. Vinnustofan fer fram á ykkar vinnustað. Dæmi og æfingar taka mið af þeim símtölum sem starfsfólkið sinnir og þeim aðstæðum sem þið viljið æfa.

Lengd: frá einni klukkustund upp í tvo daga. 

Fræðslustyrkir. Endurgreiðsla getur numið allt að 90% af námskeiðskostnaði óháð inneign starfsfólks. Við aðstoðum ykkur við að kanna styrkmöguleika og sækja um. Nánari upplýsingar hjá Áttinni.

Fáið tilboð í símaþjálfun fyrir ykkar teymi

Hvaða símtöl viljið þið að gangi betur? Sendið okkur eitt dæmi, áætlaðan fjölda þátttakenda og það tungumál sem hentar hópnum. Við svörum með tillögu að áherslum, fyrirkomulagi og verði.

Fá tilboð í námskeið í símaþjónustu

899 8264 · gerumbetur@gerumbetur.is

Description