8. mars 2024
Menningarnæmi á vinnustað – hvernig snýtibréf og kurteisi endurspegla menningarmun
Hvers vegna menningarlæsi skiptir máli í daglegum samskiptum
Á námskeiðum Gerum Betur um menningarnæmi og fjölmenningu heyri ég oft hjá erlendu starfsfólki að þeim finnist sérstakt hversu sjaldan Íslendingar snýta sér í pappír. Ein þýsk kona nefndi til dæmis að þrátt fyrir að hafa búið á Íslandi í 20 ár hefði hún aldrei vanist því að við sjúgum upp í nefið frekar en að snýta okkur.
Þegar ég bjó í Bandaríkjunum fannst mér sjálfri mjög óviðkunnanlegt þegar fólk snýtti sér í snýtibréf fyrir framan aðra, braut það svo saman og stakk í vasann. Þessar smávægilegu daglegu venjur geta vakið sterkar tilfinningar – og eru oft fyrsta menningarsjokkið sem fólk verður fyrir á nýjum stað.
Menningarsjokk frá London: Snýtibréf og samfélagsleg viðmið
Í grein sem ég rakst á,
„To Blow or to Sniff – Culture Shock for an Expat," lýsir indverskur maður sínu fyrsta menningarsjokki eftir að hann flutti til London. Hann varð steinhissa á hversu algengt það var að fólk snýtti sér fyrir framan aðra og stakk síðan notaða pappírsbréfinu í vasann – sérstaklega þar sem Bretar eru yfirleitt kurteisir, tillitssamir og ekki svona háværir. Þegar hann ræddi þetta við breskan samstarfsmann þá útskýrði Bretinn t.d. að bresk heilbrigðisyfirvöld (NHS) hafa staðið fyrir herferðum eins og „Catch it, Bin it, Kill it“ til að draga úr smiti. Samstarfsmaðurinn nefndi líka að hann skildi ekki þetta að sjúga upp í nefnið.
Á Indlandi, segir hann, er börnum kennt frá unga aldri að forðast líkamshljóð í almenningsrýmum – nema kannski að ropa eftir góða máltíð. Að snýta sér í vinnunni eða opinberlega er talið ókurteisi.
Margir Indverjar kjósa því að sjúga frekar upp í nefið og bíða með að snýta sér þar til þeir eru einir, t.d. á salerni.
Á Íslandi mætti segja að þriðja reglan gildi oft: við sjúgum bara upp í nefið þar sem við stöndum og höldum svo áfram eins og ekkert hafi í skorist.
Menningarlæsi: Lykill að betri samskiptum á fjölbreyttum vinnustað
Þetta tilvik sýnir vel hversu mikilvægt það er að vera meðvitaður um menningarmun. Á fjölmenningarlegum vinnustöðum skiptir miklu að skilja að fólk kemur með ólík viðmið og venjur – og að það sem einum þykir kurteisi, getur öðrum þótt ósmekklegt.
Menningarlæsi hjálpar starfsfólki að:
✔ Auka skilning á ólíkum menningarheimum
✔ Draga úr árekstrum og misskilningi
✔ Efla samskipti og samvinnu
✔ Stuðla að jákvæðri, opnari og heilbrigðari vinnustaðamenningu
Menningarlæsi hjálpar starfsfólki að:
✔ Auka skilning á ólíkum menningarheimum
✔ Draga úr árekstrum og misskilningi
✔ Efla samskipti og samvinnu
✔ Stuðla að jákvæðri, opnari og heilbrigðari vinnustaðamenningu
Mælt er með – tengdar lausnir fyrir vinnustaði
Menningarnæmi og samskipti við ferðamenn – sérsniðið staðnámskeið
Menningarlæsi í verki – sveigjanlegt netnámskeið fyrir fjölbreytt teymi
Do's & Don'ts When Welcoming Foreign Guests – hagnýt bók um menningarnæmni í þjónustu
Taktu næsta skref – áður en misskilningur verður að togstreitu
Ekki bíða eftir árekstrinum – gerðu starfsfólk þitt tilbúið að takast á við fjölbreytt samskipti af virðingu, meðvitund og fagmennsku.
📧 Hafðu samband: gerumbetur@gerumbetur.is
🌐 www.gerumbetur.is
Tengdar bloggfærslur
-
Hvernig kveðja mismunandi menningarheimar árið?
-
Menningarlæsi í þjónustu – lykillinn að ánægðum viðskiptavinum og sterkari teymun
-
Innleiðing menningarnæmni á vinnustað – 5 hagnýt skref
Bloggfærsla þessi er byggð á eigin reynslu og greininni: To Blow or to Sniff – Culture Shock for an Expat, interculturalreflections.substack.com
.