Beint í efni

19. október 2026

Föstudagskakan dugar ekki ein og sér – viðtal í Morgunblaðinu

Á mörgum vinnustöðum er föstudagskakan fastur liður. Hún er vel meint og skapar notalega stund. En kakan segir engum hvað hann gerði vel í vikunni eða hvers vegna það skipti máli.

Hvernig getur hrós gert góð vinnubrögð sýnileg? Og hvers vegna dugar kakan ekki ein og sér til að byggja upp góðan starfsanda? Um þetta ræddi ég við Sigurð Boga Sævarsson í viðtalinu „Hrós bætir rekstur og starfsanda“ sem birtist í Morgunblaðinu 17. október 2026. Hér eru þrír lykilpunktar og viðtalið í heild fylgir á eftir með leyfi Morgunblaðsins.

Í stuttu máli

1
Veit starfsfólkið hvað þú kannt að meta?
Stjórnandi getur verið ánægður með starfsfólkið sitt án þess að það viti af því. Stundum hefur hrósið einfaldlega verið hugsað en ekki sagt upphátt. Þegar fólk heyrir hvað skiptir máli verða samskiptin skýrari og gildin fá merkingu í daglegu starfi.
2
Kakan má vera með – en hún er ekki nóg
Við þurfum líka að hlusta hvert á annað og taka eftir því sem vel er gert. Hrós kemur ekki í stað sanngjarnra launa, viðráðanlegs álags eða góðrar stjórnunar. Það þarf að vera einlægt og satt.
3
Æfingin heldur áfram eftir námskeiðið
Með hrósstokknum og átta hugvekjum sem Örn Árnason ljær rödd sína heldur hópurinn þjálfuninni áfram á starfsmannafundum.

DÆMI

Almennt: „Vel gert.“

Skýrt: „Þú útskýrðir þetta svo skýrt að ég gat haldið áfram án aðstoðar.“

Fyrra hrósið er góð byrjun. Það seinna segir líka hvaða gagn var af aðstoðinni.

Viðtalið: Hrós bætir rekstur og starfsanda

Sigurður Bogi Sævarsson, Morgunblaðið, laugardaginn 17. október 2026 (Daglegt líf, bls. 12).

„Góð orð og viðurkenning fyrir vel unnin störf geta sannarlega haft áhrif á árangur og rekstur fyrirtækja,“ segir Margrét Reynisdóttir sem stendur að ráðgjafafyrirtækinu Gerum betur. Hún er með meistaragráðu í stjórnun, stefnumótun og markaðsmálum. Hún er jafnframt brautryðjandi í þjónustuþjálfun á Íslandi og höfundur bóka um þjónustugæði og menningarnæmni.

„Hrós segir fólki hvaða vinnubrögð eru metin. Ef stjórnandi hrósar starfsmanni fyrir að miðla upplýsingum vel á milli deilda sýnir hann að samvinna skipti máli og með því verða gildi fyrirtækisins sýnileg í daglegu starfi,“ nefnir Margrét.

Nýlega gaf Margrét út stokk með 24 hrósspilum og æfingum í jákvæðum samskiptum. Spilin eru nýjung á íslenskum markaði og hluti af sérstöku námskeiði hennar. Með í pakkanum eru einnig átta stuttar hugvekjur í myndbandsformi þar sem Örn Árnason ljær efninu rödd sína.

Dæmi, húmor og skýr orð

„Með dæmum, léttum húmor og verkefnum er fólk hvatt til að taka eftir því jákvæða, orða hrósið skýrt og taka við því án þess að gera lítið úr eigin framlagi,“ segir Margrét sem í meira en 20 ár hefur sinnt margvíslegri starfsþjálfun og námskeiðahaldi. Eftir eitt námskeið í upphafi má halda þjálfuninni áfram innandyra með því að draga eitt spil úr stokknum á vikulegum starfsmannafundi, ræða það í nokkrar mínútur og æfa sig út vikuna. Þannig má nýta stokkinn í 24 vikur án þess að halda þurfi fleiri námskeið.

Algengt er, segir Margrét, að stjórnendur segist hrósa starfsfólki sínu en starfsfólkið upplifi hlutina á annan veg. Stundum hefur stjórnandinn, sem kann vel að meta unnin störf, einfaldlega hugsað hrósið en ekki sagt það upphátt. Starfsfólkið er hins vegar ekki – eðlilega - með aðgang að hugsunum hans.

„Svo skiptir máli hvernig hrósið er orðað og borið fram. Að segja „flott hjá ykkur“ á leið út af fundi nær ekki endilega til manneskjunnar sem lagði sig sérstaklega fram. Rödd og líkamstjáning þurfa að fylgja orðum. Ef ég segi „frábært hjá þér“ með augun límd við símann er ekkert víst að sá eða sú sem lagði sig alla fram upplifi verðskuldaða viðurkenningu,“ segir Margrét.

Margt mótar góðan starfsanda

Fyrirtæki, bæjarfélög og stofnanir sem biðja um námskeið standa sig yfirleitt vel í þjónustu en vilja stöðugt gera betur.

„Í fyrirlestrunum fjalla ég um samskipti, þjónustu og menningarlæsi. Góð þjónusta við viðskiptavini og góð samskipti innan vinnustaðarins verða að fara saman. Við erum líka að veita hvert öðru þjónustu í vinnunni. Sá sem hjálpar samstarfsmanni að leysa mál á alveg jafn mikið skilið að eftir því sé tekið og sá sem fær þakkarpóst frá viðskiptavini,“ segir Margrét. Hún bætir við að menning geti annars verið ólík innan fyrirtækja og jafnvel deilda. Hún birtist meðal annars í því hvort fólk heilsast, hlusti hvert á annað, biðji um aðstoð og taki eftir því sem gott sé.

„Margt þarf að fara saman svo starfsandi sé góður. Ég hef í því sambandi ekkert á móti því til dæmis að á föstudögum sé kaka með kaffinu. En kakan getur ekki ein og sér bætt upp fyrir að enginn hlusti á þig hina fjóra dagana. Það getur verið mikið fjör á vinnustað án þess að öllum finnist þeir tilheyra hópnum. Ég mæli góða vinnustaðamenningu því ekki eingöngu í kökum eða fjölda viðburða sem skemmtinefndin bryddar upp á.“

Gervigreind þróar þjónustu

Hrós er enginn töfrasproti og kemur ekki í stað sanngjarnra launa, viðráðanlegs álags eða góðrar stjórnunar. Enginn borgar húsnæðislánið með góðum orðum einum.

Svo þarf líka að vera innistæða fyrir hrósinu, tiltekur Margrét. „Hrós er gjöf, ekki skuld“ er kjarninn í einni hugvekjunni, þar sem fjallað er um að við þurfum ekki að hrósa strax til baka.

„Þegar einhver hrósar okkur finnum við stundum fyrir því að þurfa að hrósa strax til baka. En við erum ekki að spila borðtennis. Við þurfum ekki að slá hrósi til baka yfir netið um leið og það berst,“ segir Margrét. Borðtennisdæmið kemur bæði fyrir á hrósspili og í einni hugvekjunni. Húmorinn hjálpar til við að koma boðskapnum til skila.

„Gervigreind, sjálfsafgreiðsla og sjálfvirkni eru áberandi í þróun í þjónustu. Það getur verið mikil framför að geta leyst einfalt erindi fljótt og á þeim tíma sem hentar fólki. En tæknin þarf að hjálpa viðskiptavininum að komast áfram. Eitt er að tækni svari spurningunni en manneskjunni þarf líka að sinna. Við getum fengið tæknilega rétt svar en setið eftir óörugg eða ráðvillt. Þess vegna skiptir máli að starfsfólk kunni að hlusta, útskýra og taka ábyrgð þegar málið passar ekki í fyrirfram ákveðinn farveg. Viðskiptavinurinn á ekki að þurfa að verða verkefnastjóri yfir eigin erindi,“ segir Margrét og að síðustu:

Einstakur ávinningur

„Á námskeiðum legg ég áherslu á að fólk fái að prófa, ræða og tengja efnið við aðstæður úr eigin starfi. Að hlusta á hugmynd, biðja einhvern um álit eða byggja áfram á því sem hann segir getur verið sterk viðurkenning. Hrós má orða á ýmsa lund og ávinningurinn af því er einstakur, þegar vandað er til verka.“

Prófaðu á næsta starfsmannafundi: Fimm mínútna hrósæfingin

1
Drögum eitt spil
Lesið spilið upphátt fyrir hópinn.
2
Ræðum það
Tengið efnið við dæmi úr daglegu starfi.
3
Prófum eina hugmynd strax
Veljið eitt atriði til að prófa fram að næsta fundi.

Viltu sjá hvernig þetta lítur út?

Ég sendi þér gjarnan eitt myndband og nokkur spil. Þú getur líka bókað 20 mínútna spjall um hvernig námskeiðið gæti nýst þínum hópi.

Námskeiðið tekur 1–4 klst. og fer fram á vinnustaðnum eða í fjarfundi. Það er styrkhæft hjá Áttinni og flestum starfsmenntasjóðum og allt að 90% af kostnaði fæst endurgreitt.

Hlustaðu líka á Margréti ræða hrós í Mannlega þættinum á Rás 1.

Margrét Reynisdóttir
margret@gerumbetur.is · 899 8264

Kynntu þér hrósnámskeiðið

Heimild: Sigurður Bogi Sævarsson. „Hrós bætir rekstur og starfsanda.“ Morgunblaðið, 17. október 2026, bls. 12. Birt með leyfi Morgunblaðsins.