Símasamskipti í þjónustu
Product information
Short description
Topp símaþjónusta – sterkari tengsl, faglegri símtöl
Description
Fáðu öryggi og færni í símasamskiptum sem skilar sér strax í betri þjónustu og sterkari tengslum.
Færni sem skiptir máli – þegar röddin er helsta verkfærið þitt í þjónustu.
Viltu verða öruggari í símtölum og ná betri árangri í þjónustu í gegnum síma?
Námskeiðið er hannað fyrir alla sem sinna þjónustu eða samskiptum í gegnum síma. Þú lærir að takast á við símtöl af yfirvegun og fagmennsku, koma skýrum skilaboðum til skila og bregðast við krefjandi aðstæðum með sjálfstrausti.
Markviss þjálfun í símasamskiptum skilar sér strax í betri upplifun viðskiptavina og faglegri tengslum í starfi. Þetta námskeið veitir þér tækin, örugga raddbeitingu og sjálfstraustið sem þarf til að takast á við hvaða símtal sem er.
Ávinningur
✔ Lærðu að taka og svara þjónustusímtölum af fagmennsku og yfirvegun
✔ Auktu hæfni þína í markvissum símasamskiptum og styrktu samband við viðskiptavini
✔ Nýttu hagnýtar leiðir til að takast á við erfiða eða óánægða viðskiptavini í síma
✔ Styrktu sjálfstraust þitt og rósemi í krefjandi samskiptum í síma
Fyrir hverja er námskeiðið?
Þetta námskeið er fyrir alla sem sinna símaþjónustu – hvort sem það er í símtölum við viðskiptavini, samstarfsfólk eða yfirmenn.
Sérstaklega gagnlegt ef þú vilt skerpa á fagmennsku, öryggi og samskiptahæfni í krefjandi símtölum og læra hvernig á að koma meginboðskap á framfæri skýrt og áhrifaríkt.
Námskeiðið í hnotskurn
Námskeiðið fer fram á netinu og inniheldur fjölbreytt námsefni - þar á meðal rafbókina Topp símaþjónusta, eina íslenska bókin um símaþjónustu eftir Margréti Reynisdóttur.
Þú færð skref-fyrir-skref leiðbeiningar, æfingar og tæki sem hjálpa þér að svara símtölum af öryggi – og takast á við erfið símtöl án þess að tapa yfirvegun.
Auk þess eru hagnýtir gátlistar, stutt myndskeið, fróðleiksmolar, verkefni og æfingar byggðar á raunverulegum aðstæðum. Að loknu námskeiði færðu viðurkenningarskjal.
Aðgangur að efninu er í fjórar vikur frá upphafi námskeiðs – þetta er sjálfsnám þar sem þú ræður hraðanum, hvort sem þú tekur allt námið í einu lagi eða í áföngum.
Námskeiðið er á íslensku.
Umsagnir þátttakenda
„Eftir námskeiðið get ég tekist á við erfið símtöl af miklu meiri ró og fagmennsku. Áður fann ég oft fyrir streitu þegar erfiðir viðskiptavinir hringdu, en nú hef ég verkfæri til að stjórna aðstæðum og ná betri útkomu.“
„Frábært námskeið sem kenndi mér að takast á við erfiða viðskiptavini án þess að tapa yfirvegun eða fagmennsku. Ég finn mikinn mun á viðbrögðum viðskiptavina þegar ég nota nýju aðferðirnar!“
„Námskeiðið breytti alveg hvernig ég nálgast krefjandi símtöl. Ég er miklu öruggari í samskiptum við óánægða viðskiptavini og finn að fagleg nálgun skilar sér í betri samskiptum og meiri ánægju viðskiptavina.“
Fyrir vinnustaði og teymi – námskeið sem virkar
Við sérsníðum símaþjónustunámskeið fyrir vinnustaði þar sem þetta sveigjanlega netnámskeið er grunnurinn.
Í framhaldi bjóðum við upp á staðnámskeið sem dýpkar umræðu og tengir efnið við raunverulegar aðstæður á vinnustaðnum.
Saman myndar þetta öflugt vendinám sem styrkir fagmennsku, þjónustulund og teymisvinnu.
Vertu skrefi á undan
Skráðu þig í dag og sjáðu strax mun á næsta símtali – aukin fagmennska og öryggi í símsamskiptum!
gerumbetur@gerumbetur.is
Styrkjamöguleikar – Fáðu allt að 90% endurgreitt fyrir þjónustunámskeið
Námskeiðið er styrkhæft hjá flestum fræðslusjóðum. Flest fyrirtæki geta fengið allt að 90% af kostnaði endurgreiddan – óháð inneign starfsfólks. Við aðstoðum við umsóknina ➡ Nánari upplýsingar á attin.is
